Sjómannadagsmessa og gúllassúpa ásamt kynningu á fermingarstarfinu. Kæru væntanlegu fermingarbörn 2027 og forráðafólk, sunnudaginn þann 7. júní kl 18.00 bjóðum við ykkur til guðsþjónustu í Kirkju Óháða Safnaðarins. Þetta verður létt og skemmtileg athöfn þar sem prestur kirkjunnar Guðrún Eggerts þjónar.
Organistinn okkar Kári Allansson og Vox Gospel sjá um tónlistina. Gúllassúpa er á eftir fyrir sanngjarnt verð, aðeins 2900,-
Eftir guðsþjónustuna boðum við til fundar þar sem við kynnum fermingarstarfið og fermingardagana.
Hlökkum til að sjá ykkur öll.
