Mánaðarskipt færslusafn fyrir: október 2020

Messur 1. og 8. nóvember falla niður

Kæru safnaðarfélagar, því miður þurfum við að fella niður messur bæði 1. og 8. nóvember. Endilega fylgist með okkur á Facebook síðunni okkar en þar hafa Pétur prestur og Kristján Hrannar kórstjóri verið með stuttar helgistundir https://www.facebook.com/ohadisofnudurinn.

Eins hvetjum við alla sem á þurfa að halda að hafa samband við Pétur, hann er með viðtalstíma á mánudögum milli klukkan 18:00 og 19:00 eða eftir samkomulagi í safnaðarheimili Óháða safnaðarins og svo er líka hægt að senda honum póst eða hringja.

Pétur Þorsteinsson: afdjoflun@tv.is
Sími  kirkju: 551 0999   gsm: 860 1955

Munið að hafa kærleikann að leiðarljósi, hugsum vel um okkur og okkar nánustu, við þurfum öll á því að halda.

Messur í október falla niður

Í samráði við sóttvarnaryfirvöld hefur verið tekin sú ákvörðun að Óháði söfunuðurinn standi ekki fyrir neinum athöfnum eða helgihaldi á meðan samkomubann stendur yfir. Ekkert starf mun því fara fram í kirkjunni fyrr en samkomubanni lýkur og því falla messurnar í október niður.

Að fella niður starf í kirkjunnar okkar, þó tímabundið sé, er ekki sú ákvörðun sem við viljum taka. Á þessum fordæmalausu tímum í samfélaginu verðum við samt sem áður að fylgja leiðbeiningum og sýna ábyrgð gagnvart fólkinu okkar og þá sérstaklega þeim sem eru í viðkvæmri stöðu.

Þó við sjáum okkur knúin til að loka hurðinni þar til samkomubannið er yfirstaðið þýðir það ekki að okkar kæri prestur, séra Pétur Þorsteinsson, ætli að taka sér frí. Hann er áfram til staðar fyrir hvern þann sem á þarf að halda og vilji einhver ná tali af honum má endilega hafa samband við hann í síma 860-1955 eða í tölvupósti afdjoflun@tv.is

Það er okkar von að safnaðarfólk sýni þessu skilning og við hlökkum til að sjá sem flesta þegar þessi vá er yfirstaðin og við opnum dyrnar aftur.

Í millitíðinni hvetjum við fólk til þess að rækta trúna í hjarta sínu sem fylgir okkur hvar sem við erum og í öllu sem við gerum. Leggjum áherslu á náungakærleikan á þessum tímum og höfum í huga að eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt.

Með kveðju stjórn Óháða safnaðarins