Fjölskylduhátíð / hoppukastali og pylsupartý

Á sunnudaginn 30 ágúst kl. 13.00 hefst helgihald vetrarins með hátíð. Dagskrá september mánaðar er svo aðeins með öðru sniði og er fólki bent á að fara inn á facebook síðu kirkjunnar og leita sér upplýsinga.

Guðrún Eggerts prestur þjóna fyrir altari á sunnudaginn. Karlakórinn Esja mun syngja undir stjórn Kára Allansonar organista. Börn eru sérlega velkomin í barnastarfið og hoppukastalann, þá verður pylsupartý að lokinni messu.

Við minnum á kyrrðarstund í kirkjunni miðvikudaginn 16. sept kl. 12.00

Sjómannadagsmessa og gúllassúpa, ásamt fermingarkynningu

Sjómannadagsmessa og gúllassúpa ásamt kynningu á fermingarstarfinu. Kæru væntanlegu fermingarbörn 2027 og forráðafólk, sunnudaginn þann 7. júní kl 18.00 bjóðum við ykkur til guðsþjónustu í Kirkju Óháða Safnaðarins. Þetta verður létt og skemmtileg athöfn þar sem prestur kirkjunnar Guðrún Eggerts þjónar.

Organistinn okkar Kári Allansson og Vox Gospel sjá um tónlistina. Gúllassúpa er á eftir fyrir sanngjarnt verð, aðeins 2900,-

Eftir guðsþjónustuna boðum við til fundar þar sem við kynnum fermingarstarfið og fermingardagana.

Hlökkum til að sjá ykkur öll.