Sr, Pétur Þorsteinsson predikar og þjónar fyrir altari. Messugutti er Petra Jónsdóttir. Alexandra Dröfn og Guðrún Agla sjá um barnastarfið. Árni Heiðar Karlsson spilar á Hammond, Ásgeir Ásgeirsson á gítar og Scott McLemore spilar á trommur. Graduale Nobili leiðir sálmasöng og messusvör og syngur undir altarisgöngu. Ólafur Kristjánsson tekur vel á móti öllum. Maul eftir messuna. Hlökkum til að sjá sem flesta og eiga samverustund með ykkur.
Greinasafn fyrir flokkinn: Fréttir
Guðsþjónusta 13. nóvember kl. 14:00
Sunnudaginn kemur, 13. nóvember kl 14:00 verður látinna minnst. Barnastarfið verður á sínum stað á sama tíma í umsjón Alexöndru og Guðrúnar. Séra Pétur Þorsteinsson predikar og þjónar fyrir altari og meðhjálpari er Petra Jónsdóttir. Graduale nobili leiðir sálmasönginn og messusvörin undir stjórn og undirleik organistans Árna Heiðars Karlssonar. Ólafur Kristjánsson mun taka vel á móti öllum. Maul eftir messu.
Athugið að hægt er að senda inn nöfn þeirra sem minnast á, á netfangið afdjoflun@tv.is en þá þarf helst að senda inn sem fyrst eða fyrir sunnudaginn.