Greinasafn fyrir flokkinn: Fréttir

Organisti / kórstjóri – hlutastarf

Óháði söfnuðurinn óskar eftir að ráða organista og kórstjóra frá og með 1. desember 2025. Um er að ræða 50% starf við orgelleik og kórstjórn.
Kóræfingar kirkjukórsins VOX Gospel eru einu sinni í viku. Í kirkjunni eru góð hljóðfæri, pípuorgel, Hammond orgel og flygill.
Umsækjendur hafi reynslu í orgelleik sem og kórstjórn. Reynsla af fjölbreyttu tónlistarstarfi er kostur.
Umsækjendur þurfa að búa yfir hæfni í mannlegum samskiptum og geta sýnt sveigjanleika í starfi.
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2025.
Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréfi. Umsóknir sendist á stjorn@ohadi.is.

Einnig er hægt að sækja um starfið í gegnum Alfreð:
https://alfred.is/starf/organisti-korstjori-hlutastarf