Þjóðbúningamessa og aðalfundur

Sunnudaginn 26. apríl 2026 kl. 14 verður þjóðlaga- og þjóðbúningamessa í Óháða söfnuðinum.
Séra Guðrún okkar þjónar fyrir altari og Sönghópurinn á kirkjuloftinu sér um tónlistina og kaffið eftir messu. Bæði tónlistin og kaffið verður þjóðlegt.

Steinunn Káradóttir sér um barnastarfið svo endilega mætið með börnin.

Eftir messu verður aðalfundur safnaðarins haldinn.

Hlökkum til að sjá ykkur og hvetjum þá sem geta að mæta í þjóðbúningum.

Deila