Mánaðarskipt færslusafn fyrir: apríl 2026

Verið velkomin

Messa verður komandi sunnudag 03. maí kl. 14.00.
Þá mun Elísabet Þórðardóttir organisti Laugerneskirkju heiðra okkur með nærveru sinn og spilar undir í messunni og verður með félaga úr kór Laugarneskrikju með sér.
Guðrún Eggerts leiðir stundina.
Gott kaffi og samfélag á eftir.

Öll hjartanlega velkomin

Þjóðbúningamessa og aðalfundur

Sunnudaginn 26. apríl 2026 kl. 14 verður þjóðlaga- og þjóðbúningamessa í Óháða söfnuðinum.
Séra Guðrún okkar þjónar fyrir altari og Sönghópurinn á kirkjuloftinu sér um tónlistina og kaffið eftir messu. Bæði tónlistin og kaffið verður þjóðlegt.

Steinunn Káradóttir sér um barnastarfið svo endilega mætið með börnin.

Eftir messu verður aðalfundur safnaðarins haldinn.

Hlökkum til að sjá ykkur og hvetjum þá sem geta að mæta í þjóðbúningum.