Gönguguðsþjónusta

Brynjudalur – Mynd: Elin Laxdal

Gönguguðsþjónustan sem hefst kl. 9:00 að morgni laugardagsins 25. maí, verður að þessu sinni á Hvalfjarðarsvæðinu. Ekið verður í Brynjudal að bænum Hrísakoti. Þar hefjum við gönguna og göngum inn dalinn að fallegu gili, Þórisgili.  Fyrir þá sem vilja fara lengra er möguleiki á að ganga lengra upp á hálsinn. Við getum m.a. virt fyrir okkur staði sem komu fyrir í þættinum Ófærð II. Síðan verður haldið til baka eftir svipaðri leið.

Söngvinir, kór eldri borgara í Kópavogi leiðir messusöng undir stjórn Kristjáns Hrannars. Ólöf Ingólfsdóttir söngkona syngur einsöng.

Þetta eru um 7 km en við tökum góðan tíma í gönguna og til að
skoða umhverfið.

Gangan ætti að vera létt, en við höfum ekki haft tækifæri á að prufuganga hana því við þurftum að breyta áætlun þar sem svæðið sem við ætluðum að ganga er lokað vegna æðarvarps !

Gerum ráð fyrir tveimur köffum.

Að þessu sinni sleppum við sundi þar sem sundlaugin á svæðinu opnar ekki fyrr en í lok mánaðarins. Við borðum svo matarmikla súpu á Bjarteyjarsandi um kl. 16:30–17:00 þar sem hver og einn greiðir fyrir sig 2000. kr. Einnig er möguleiki á því að bæta við köku og kaffi/te.

Deila