|
Hin árlega fjölskylduferð verður farin út í Viðey miðvikudaginn 13.ágúst
Mæting á bryggjuna í Sundahöfn 18.30 með nesti. Svo verður haldið út í eyna og göngum við að gamla bænum og förum að "tanknum" en þar getum við borðað nestið okkar en þar er grill á staðnum svo tilvalið er að hafa með sér pylsur eða hamborgara á grillið. Presturinn tekur með sér gítarinn svo það verður sungið og trallað.
Einnig mun Pétur sjá um að gefa okkur hið vinsæla kúmenkaffi sem enginn má láta fram hjá sér fara.
Allir hvattir til að mæta og eiga ánægjulega kvöldstund saman.
Áætluð heimferð um 21.30
|