Skráning á póstlista






Heim
Alfa námskeið II

Alfa námskeið II hefst þriðjudaginn 13.janúar kl. 19.00

Tekið er fyrir Fjallræðan - stjórnarskrá himnaríkis og hefst að venju með kvöldverði kl.19.00

Allir eru velkomnir og hægt er að skrá þátttöku  og fá nánari upplýsingar hjá Pétri í síma 860 1955 eða á Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Ekki þarf að hafa lokið Alfa I til að fara á þetta námskeið.

 
Senn líður að jólum

Ágætu safnaðarmenn og -konur ásamt öðrum velunnurum safnaðarins.

     Nú styttist í jólin og biðin senn á enda. Aðventan hefur verið notaleg í alla staði og síðastliðið sunnudagskvöld, þ.e. aðventukvöldið okkar í kirkjunni var stórkostlegt. Kirkjan þéttsetin og nánast hvert sæti skipað. Það mátti sjá mikla eftirvæntingu í augum allra viðstaddra og eftir að formaður safnaðarstjórnar, Guðrún Halla Benjamínsdóttir, hafði kveikt á aðventuljósunum hófst formleg dagskrá. Kári Allansson organisti og kórstjóri á veg og vanda að henni og kunnum við honum bestu þakkir fyrir.
     Við fengum góða heimsókn frá systurkirkju okkar, Fríkirkjunni í Reykjavík. Anna Sigríður Helgadóttir, messósópran m.m. kom með kórinn sinn og fluttu þau nokkur jólalög og –sálma. Kórinn er skipaður ungu söngfólki sem á framtíðina fyrir sér. Takk fyrir fallegan og tæran söng ásamt prúðmannlegri framkomu allri.
     Ræðumaður kvöldsins var að þessu sinni Siggi stormur, fullu nafni Sigurður Ragnarsson. Hann flutti mál sitt af miklum myndugleik og fór fram og aftur í tíma og rúmi þegar hann bað viðstadda að rifja upp í huga sér jól liðinna tíma og dagsins í dag. Takk fyrir okkur Siggi ... þetta voru orð í tíma töluð.
     Einnig flutti kór Óháða safnaðarins nokkur verk undir stjórn Kára Allanssonar. Einsöngvari var Guðlaug Pétursdóttir og flutti hún Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns með aðstoð kórsins. Kunnum við Kára, kór og einsöngvara okkar bestu þakkir fyrir því án þeirra hefði þetta ekki verið hægt.
     Í nær almyrkvaðri kirkju í lokin gengu hvítklædd fermingarbörn inn, krupu fyrir framan altarið á meðan presturinn kveikti á kertum þeirra sem þau síðan gengu með fram kirkjuna og tendruðu á kertum viðstaddra. Og þegar kirkjan var uppljómuð lifandi ljósi sungum við saman jólasálminn hugljúfa og fallega Heims um ból. Á þessari stundu var hátíðleikinn hvað mestur. Takk fermingarbörn og foreldrar ... þið stóðuð ykkur vel.
      Hér að neðan er dagskrá kirkjunnar um jól og áramót og hvet ég sem flesta að koma til kirkju einhvern af þessum dögum.

Gleðileg jól og farsælt komandi ár.

Ragnar Kristjánsson
meðhjálpari

 

Aðfangadagur.
Aftansöngur kl. 18. Að venju verða hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar fluttir undir stjórn Kára Allanssonar og kór safnaðarins leiðir sönginn. Einnig mun óbóleikarinn Össur Ingi Jónsson skreyta stundina með undirleik sínum. Allir eru hjartanlega velkomnir.

Jóladagur.
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar undir stjórn Kára Allanssonar og kór safnaðarins leiðir sönginn. Guðlaug Pétursdóttir syngur einsöng og mun hún ásamt kórnum flytja Ave María e. Sigvalda Kaldalóns. Hugleiðing dagsins er eftir Harald Haraldsson, safnaðarstjórnarmann. Elísabet Ólöf Helgadóttir dótturdóttur hans mun flytja hana. Allir eru hjartanlega velkomnir.

Gamlársdagur.
Aftansöngur kl. 18. Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar verða fluttir undir stjórn Kára Allanssonar og kór safnaðarins leiðir sönginn. Að venju mun Pétur Þorsteinsson flytja okkur áramótahugvekju. Allir eru hjartanlega velkomnir.

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Endir >>

Úrslit 36 - 40 af 43
Viltu vera með í kirkjukórnum?

Kirkja Óháða safnaðarins
Kirkja Óháða Safnaðarins