|
Guðsþjónusta - barnastarf - aðalfundur
Guðsþjónusta og altarisganga kl. 14
Kári Allansson, organisti, leiðir kór og kirkjugesti í almennum söng.
Eftirfarandi sálmar verða sungnir að þessu sinni:
Nr. 591 Ó, Guð, ég veit hvað ég vil
Nr. 152 Nú rís og brosir röðull nýr
Nr. 161 Hirðisraust þín, Herra blíði
Nr. 9 Lofsyngið Drottni
Nr. 709 Þú heyrir spurt
Guðrún Halla Benjamínsdóttir verður í móttökunni og Ragnar Kristjánsson er meðhjálpari að þessu sinni.
Barnastarfið er á sama tíma en það er í umsjón Hildar og Elíasar. Við hvetjum alla forerldra og forráðamenn barna að koma með börnin til kirkju og þannig gefa þeim tækifæri að taka þátt í starfi kirkjunnar.
Maul eftir messu.
Aðalfundur Óháða safnaðarins
Um kl. 15.30 hefst aðalfundur Óháða safnaðarins.
Fundarstaður Kirkjubær, safnaðarheimili Óháða safnaðarins.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Önnur mál
Hlökkum til að sjá þig og þína og minnum á að ef þú villt lifandi kirkju og blómlegt starf ... þá er ekkert annað í boði en að mæta og taka þátt.
|