Skráning á póstlista






Heim
Aðventukvöld í Óháða söfnuðinum

Hið árlega aðventukvöld okkar verður haldið sunnudaginn

 6.desember kl. 20

Sönghópurinn Veirurnar munu syngja ásamt kór Óháða safnaðarins undir stjórn Árna Heiðars, einnig kemur óbóleikarinn Matthias Nardeau og spilar fyrir okkur.

Ræðumaður kvöldsins er Árni Björnsson þjóðháttafræðingur.

Eftir að hafa hlustað á fallega tónlist og orð Árna þá verður boðið upp á smakk á smákökum  í safnaðarheimilinu.

Allir eru hjartanlega velkomnir að njóta hátíðleikans í notalegu og rólegu umhverfi.

Munið að taka með ykkur gesti.

 
Jólafundur kvenfélagsins

Jólafundur kvenfélags Óháða safnaðarins verður haldinn föstudaginn 27. nóvember n.k.

Fundurinn hefst með borðhaldi kl. 20.00 Að vanda verður skipst á jólapökkum og öðru skemmtilegu gamanefni. 

Kostnaði stillt í hóf, einungis kr.1500.- fyrir matinn og koma með jólapakka fyrir ca 500.- kr.

 

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síðasta lagi miðvikudaginn 25. nóvember til formanns kvenfélagsins

Petru Jónsdóttur í síma 897 5323 eða á netfang Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 

.... og munið allar konur eru velkomnar og takið með ykkur gesti.

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Endir >>

Úrslit 21 - 25 af 44
Viltu vera með í kirkjukórnum?

Kirkja Óháða safnaðarins
Kirkja Óháða Safnaðarins