Skráning á póstlista






Heim
Fjölskylduguðsþjónusta og Bjargarkaffið.

Fjölskylduguðsþjónusta verður sunnudaginn 14.mars kl. 14

Séra Pétur verður með töfrabrögð og mun lesa inn í heila og huga kirkjugesta.

Kór safnaðarins sér um sönginn undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar organista . Ragnar Kristjánsson er meðhjálpari og Valur Sigurbjörnsson tekur á móti gestum.

Eftir messuna verður kvenfélagið með Bjargarkaffið en þá er selt kaffi og kökuhlaðborðin svigna undan kræsingunum á báðum hæðum, verð á kaffi er kr. 1000.- og fyrir börn kr. 500.- 

Innkoma þessa dags fer í sjóðinn sem var stofnaður 1972 til heiðurs Björgu Ólafsdóttur fyrstu forstöðukonu Kirkjubæjar og hlutverk hans er að styrkja einstaklinga í söfnuðinum sem hafa í einn eða annan tima öðrum fremur orðið hjálparþurfi vegna uppáfallandi veikinda eða af öðrum sökum.

Hlökkum til að sjá ykkur og endilega takið með ykkur gesti.

 
Fermingar vorið 2010

Fermingar vorið 2010.

Nú styttist í fermingarnar og verður fyrri fermingin hjá okkur á Pálmasunnudag 28.mars og sú síðari sunnudaginn 11.apríl.

Morgunblaðið mun gefa út sérstakt fermingarblað en þar verða öll nöfn fermingarbarna birt. Einnig munum við birta nöfn okkar fermingarbarna hér á síðunni.

Til að sjá hverjir fermast hjá okkur þetta vorið er hægt að fara inn undir "Athafnir" hér til vinstri á síðunni og velja síðan "Ferming".

Listinn er nú aðgengilegur og birtur með fyrirvara um breytingar.

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Endir >>

Úrslit 11 - 15 af 44
Viltu vera með í kirkjukórnum?

Kirkja Óháða safnaðarins
Kirkja Óháða Safnaðarins