|
Guðsþjónusta og barnastarf |
|
Sunnudaginn 12 sept kl. 14 er guðsþjónusta og hefst barnastarfið þá líka.
Líkt og síðustu ár verða það Elías og Hildur Björg sem sjá um það hjá okkur.
Sýnt verður barnaleikritið Ósýnilegi vinurinn og er það Stop hópurinn sem flytur.
Kór safnaðarins leiðir sönginn undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar.
Ragnar Kristjánsson er meðhjálpari og í móttökunni er Valur Sigurbergsson.
Maul eftir messu.
Allir hjartanlega velkomnir og munið að taka börnin, barnabörnin og frændsistkyni með.
|
|
|
12 sporin andlegt ferðalag veturinn 2010-2011 |
|
Upplifir þú stjórnleysi í lífi þínu og að þú ráðir ekki alltaf við aðstæður?
Hefur þú einhvern tíman velt því fyrir þér að þig langaði til og/eða þurfir á því að halda að skoða líf þitt, þ.e. hvert þú stefnir, hverjar tilfinningar þínar eru og hvernig þú getur bætt samskipti þín við annað fólk?
Vinir í bata er hópur fólks, karla og kvenna, sem tileinkar sér Tólf sporin sem lífstíl. Við höfum verið á okkar Andlega ferðalagi með öðru fólki og hvert með öðru og falið Guði að vera leiðsögumaðurinn. Við höfum fundið að vinna okkar í sporunum hefur leitt lækningu og bata inn í líf okkar og verið okkur andleg vakning. Þess vegna langar okkur að þú fáir líka að reyna bata og eitthvað nýtt inn í þitt líf og þínar aðstæður.
Komdu á kynningarfund í Kirkju Óháðra fimmtudaginn 9. september kl. 19.30. Fundurinn stendur yfir í tvo tíma en á honum færðu tækifæri til að kynnast því hvernig starfið fer fram og heyra reynslusögur fólks sem farið hefur hið Andlega ferðalag áður.
Allir eru velkomnir,
Vinur í bata
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 5 af 44 |