Skráning á póstlista






Heim
Tónlistarguðsþjónusta - barnastarf og aðalfundur Netfang

Tónlistarguðsþjónusta (þjóðlagamessa) verður sunnudaginn 25.apríl

kl. 14

FLutt verður þjóðlagamessa að sænskri fyrirmynd og svo mun tríóið flytja valin lög eftir jazzpíónistann Bill Evans. Tríóið skipa Þorgrímur Jónsson á kontrabassa, Scott McLemore á trommur og Árni Heiðar Karlsson á píanó.

Barnastarfið í umsjón Elíasar og Hildar verður á sama tíma.  Við hvetjum alla foreldra og forráðamenn barna að koma með börnin til kirkju og þannig gefa þeim tækifæri að taka þátt í starfi kirkjunnar.

Meðhjálpari er Ragnar Kristjánsson og að venju tekur Valur Sigurbergsson á móti gestum í anddyri kirjunnar.

Maul eftir messu.

 

Aðalfundur Óháða safnaðarins.

um kl. 15.30 hefst aðalfundur Óháða safnaðarins.

Fundarstaður Kirkjubær, safnaðarheimili Óháða safnaðarins.

Sjá dagskrá hér neðar á heimasíðunni.

 

Hlökkum til að sjá þig og þína og minnum á að ef þú vilt lifandi kirkju og blómlegt starf..þá er ekkert annað í boði en að mæta og taka þátt.

 

 
< Fyrri   Næsti >
Viltu vera með í kirkjukórnum?

Kirkja Óháða safnaðarins
Kirkja Óháða Safnaðarins