|
Skírdagur 1. apríl kl. 11
Upplýst bæn, bæn í verki: Samkirkjuleg guðsþjónusta
Samkirkjuleg guðsþjónusta verður haldin í kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg á skírdag, 1. apríl kl. 11.
Dagskrá Alþjóðlegs bænadags kvenna 2010 verður flutt í útvarpsguðsþjónustu. Efni bænadagsins þetta árið kom frá kristnum konum í Kamerún. Eitt megin bænarefni þessarar alþjóðlegu hreyfingar um þessar mundir er baráttan gegn mansali og verður um það fjallað í guðsþjónustunni, hvernig það birtist og hvernig kirkjurnar geta brugðist við undir kjörorði bænadagsins: Upplýst bæn, bæn í verki.
Umsjón hefur sr. María Ágústsdóttir og er hún jafnframt ræðumaður dagsins. Ásamt Maríu taka þátt í þessari samkirkjulegri guðsþjónustu hátt í tuttugu konur frá ýmsum kristnum söfnuðum á höfuðborgarsvæðinu.
Allir eru velkomnir á þessa samkirkjulegu samverustund sem þrátt fyrir alvarleika umfjöllunarefnisins einkennist af söng og þakklæti því að eins og konurnar í Kamerún segja: Við lofum Guð á tímum gleði og sorgar - já, á öllum tímum lofum við Guð!
Kaffi og kleina að lokinni samveru í kirkjunni.
Föstudagurinn langi 2. apríl kl. 20.30
Kvöldvaka kl. 20.30
Píslasaga Krists verður lesin og sér Júlíus Hjörleifsson leikari um lesturinn. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar. Karl Jóhann Bjarnason sellóleikari mun spila í lokin Sellósvítu nr.2 eftir Jóhann Sebastían Bach. Sellósvítur Bachs eru ein ástsælustu og jafnframt mest krefjandi sellóverk sem skrifuð hafa verið fyrir þetta hljóðfæri og er það mikill fengur fyrir söfnuðinn að fá að hlýða á þennan efnilega sellóleikara. Í lokin, eftir að kirkjan hefur verið myrkvuð, er gefin stund til bæna og íhugunar.
Við hvetjum alla sem eiga heimangengt að koma til kirkju og þannig eiga samfélag hvert með öðru ... munið að bjóða með afa og ömmu, bróður eða systur, frænku eða frænda nú eða bara einhverjum góðum vini sem gott er að sitja við hliðina á.
Hlökkum til að sjá þig ...
Páskadagsmorgun 4. apríl kl. 08.00
Guðsþjónusta á páskadagsmorgni kl. 08.00
Sungnir verða hátíðarsöngvar Bjarna Þorsteinssonar. Stjórnandi er Árni Heiðar Karlsson. Nemendur úr Listdansskóla Íslands munu túlka upprisu Krists í ballett. Að lokinni samveru í kirkjunni er kirkjugestum boðið í heitt súkkulaði og heitar brauðbollur á báðum hæðum safnaðarheimilisins.
Allir eru hjartanlega velkomnir og munið að ekkert er jafn gott og þéttsetin kirkja af fólki sem í einlægni styrkir sig í sinni trú á Almættið og í samskiptum hvert við annað.
Hlökku til að sjá þig og þína.
|