Skráning á póstlista






Heim
Þakkir til ykkar allra Netfang

Þakkir til ykkar allra sem glöddust með okkur bæði á afmælistónleikunum þann 9.febrúar og afmælishátiðarmessunni á síðasta sunnudag.

Tónleikarnir 9.feb tókust mjög vel og voru vel sóttir og þökkum við því tónlistarfólki sem gladdi okkur með söng og spili fyrir framlag sitt og vonumst við  til að  fá að njóta radda þeirra  aftur síðar meir.

Ómari Ragnarssyni þökkum við fyrir sérlega skemmtilega ræðu, gamanmál og söng í hátíðarmessunni.

Kristjana Stefánsdóttir skemmti okkur með söng í messunni við undirleik Árna Heiðars og Gunnars Hrafnssonar.

Myndir frá hátíðinni eru komnar inn á vefinn og getið þið séð þær með því að smella á "myndir" hér til vinstri og velja þar myndaalbúmið frá afmælishátíðinni.

 

Minni á næstu messu sem er þann 28 febrúar kl. 14  og verður það Jazzmessa í umsjón Árna Heiðars.

Sjáumst hress þar.

 

Kveðja,

Guðrún Halla.

 
< Fyrri   Næsti >
Viltu vera með í kirkjukórnum?

Kirkja Óháða safnaðarins
Kirkja Óháða Safnaðarins