Skráning á póstlista






Heim arrow Dagskrá
Dagskrá haustmisseris 2010 Netfang

Þá liggur dagskrá / starfsskrá haustmisseris 2010 fyrir og er hún sem hér segir.

 

11. ágú         kl. 18.00     Fjölskylduferð í Guðmundarlund -  sjá nánar á heimasíðunni

22. ágú         kl. 20.00     Guðsþjónusta á sumarkvöldi 

12. sept        kl. 14.00     Guðsþjónusta / Barnastarf á sama tíma. - Maul eftir messu

26. sept        kl. 14.00     Jazzmessa / Barnastarf á sama tíma. - Maul eftir messu

                                     - Upplýsingar koma síðar - fylgist því endileg með

10. okt         kl. 14.00     Kirkjudagurinn / fjölskylduguðsþjónusta - töfrabrögð hjá Pétri

                                     Kaffisala kvenfélagsins eftir messu ... rjómatertur og annað nammi namm.

17. okt         kl. 14.00     Samvera aldraðra í kirkjunni.

24. okt         kl. 14.00     Guðsþjónusta / Barnastarf á sama tíma. - Maul eftir messu 

14. nóv        kl. 14.00     Guðsþjónusta / Barnastarf á sama tíma. - Maul eftir messu

28. nóv        kl. 14.00     Tónlistarmessa / Barnastarf á sama tíma. - Maul eftir messu

05. des         kl. 20.00     Aðventukvöld - endurkomukvöld.

                                     Kaffi og smakk á smákökum eftir stundina.

24. des         kl. 18.00     Aftansöngur á aðfangadagskvöldi.

25. des         kl. 14.00     Hátíðarguðsþjónusta á jóladegi.

31. des         kl. 18.00     Aftansöngur á gamlaárskvöldi.

 

Dagskráin / starfsskráin er ósköp hefðbundin í alla staði og er það einlæg von okkar að hún höfði til sem flestra og að þannig finni safnaðarfélagar og gestir aðrir sig heima í kirkjunni okkar. Við munum allt eftir því sem nær líður viðburðum setja inn upplýsingar á síðuna, þ.e. upplýsingar um tónlistarfólk, hljóðfæraleikara sem og verk, ljóð og söngva alla sem fluttir verða. Einnig þegar og ef barnaleikrit verða flutt munum við setja inn upplýsingar á síðuna.

 

Stundum er um óvænta viðburði að ræða í messum og þá er ekki hægt að auglýsa ... þess vegna hvetjum við alla að koma til kirkju sem oftast því ekkert er yndislegra en lifandi kirkja ... þéttsetin fólki sem gleðst í hjarta sínu og sinni með okkur og Guði.

 

Með því að skoða upphafssíðuna, hægra megin undir dagatalinu, má sjá viðburði mánaðarins í "stikkorðum" en til nánari upplýsinga bendum við á að ef ýtt er á viðkomandi viðburð er oft hægt að fá meiri og nánari upplýsingar.

 

Lifið heil og sjáumst í kirkjunni okkar,

Guðrún Halla og Ragnar

 

Ábyrgðarmaður dagskrár er Pétur Þorsteinsson