Dagskipt færslusafn: 31/12/2020

Aftansöngur á gamlársdag

Við óskum landsmönnum öllum farsældar á komandi ári, með kærri þökk fyrir stundirnar á þessu krefjandi ári sem er að líða.

Hátíðarmessur um áramót 2020 eru rafrænar vegna heimsfaraldurs kórónuveiru og 10 manna samkomubanns. Við erum þakklát fyrir tæknina og reynum að gera það besta úr aðstæðum.

Klukkan 18:00 birtist hér upptaka frá aftansöng í Óháða söfnuðinum á gamlársdag. Séra Pétur Þorsteinsson þjónar fyrir altari og Kristján Hrannar Pálsson organisti sér um tónlistina. Óháði kvartettinn syngur og Oddur S. Báruson leikur á gítar.