Mánaðarskipt færslusafn fyrir: maí 2012

Gönguguðsþjónustan

Nú líður óðum að gönguguðsþjónustunni þann 9 .júní í samstarfi við  Hornstrandafara.

Gengið verður frá Villingavatni/Selflatarrétt til Hveragerðis. Leiðin er um 11-12 km löng. Hækkun er um 350 m. og ótrúlega gott útsýni. Þægileg róleg ganga í 4-5 tíma.
Farið verður  frá kirkju Óháðasafnaðarins kl 9:45 eftir messu.

Að göngu lokinni bíða heitir pottar, sund og matur á Hótel Örk.
Matseðill:
Villisveppasúpa
Lambalæri með ýmiss konar góðgæti,
Heimalagaður ís
Verð kr. 6.000,-

Eins og venjulega verður unnt að geyma sundföt og annan farangur í rútunni.
Vinsamlegast hafið gjaldið tilbúið í reiðufé í bílnum á leiðinni þar sem gjaldkerinn mun innheimta það.             Skráið ykkur sem fyrst og eigi síðar en 2. júní.
Við vonumst svo til að sjá ykkur sem flest og endilega takið með ykkur vini og vandamenn það eru allir velkomnir.

Skráning hjá: Eiríki í síma 849-9895, Eygló 895-4645 og Magnúsi 895-6833

Við hlökkum til að sjá ykkur.