Mánaðarskipt færslusafn fyrir: nóvember 2011

Aðventukvöld 11. desember

 Aðventukvöld / Endurkomukvöld

                               Sunnudaginn 11. desember og hefst kl. 20

Kór safnaðarins ásamt meðlimum úr kór Orkuveitu Reykjavíkur flytja aðventutónlist undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar. 

Einnig syngur  Auður Gunnarsdóttir sópran nokkur lög.

Ræðumaður kvöldsins er Davíð Þór Jónsson guðfræðingur.

Í lokin verður kirkjan böðuð kertaljósum.

 Að lokinni dagskrá er gestum boðið í kaffi og smákökur.

 Allir velkomnir

 

Guðsþjónusta og barnastarf

Guðsþjónusta sunnudaginn 27. nóv kl. 14
og barnastarf á sama tíma.

Kór safnaðarins leiðir okkur í söngnum undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar.
Séra Pétur Þorsteinsson þjónar fyrir altari og Petra Jónsdóttir er meðhjálpari.

Að venju er maul eftir messu og eru allir hjartanlega velkomnir.

Aðventukvöldið okkar verður sunnudaginn 11. desember kl.20
nánar auglýst síðar.